14.6.2007 | 14:53
Skilríki Takk
Hvernig á að fylgjast með því að það séu bara Kópavogsbúar sem fái frítt í strætó hjá Strætó bs.
Á að tékka á eldri borgurum og athuga hvort þeir sú úr Hafnarfirði og skólafólk út Reykjavík. Verður beðið um skilríki við innganginn til að tékka á því hvaðan fólk er og rukkað eftir því?
Frítt í strætó fyrir Kópavogsbúa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Held að allir, hvort sem þeir búi í Kópavogi eða á Raufarhöfn geti notað vagnana, erfitt að ætla að sigta utanbæjarfólk úr....vagnarnir ganga sinn hring og ENGINN er rukkaður (nema skattgreiðendur)
Georg P Sveinbjörnsson, 14.6.2007 kl. 18:43
bara smella barmmerki á alla með mynd af Gunnari Birgissyni :)
Guðbjörg (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 23:04
gleymdi mér í eigin fyndni núna :) auðvitað átti að setja barmmerkið á kópavogsbúa
Guðbjörg (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 23:50
Held að það yrðu allir Kópavogsbúar sáttir með það að ganga með barmmerki af Gunnari Birgissyni, en sennilega verður enginn rukkaður sem inn í vagna Kópavogsbúa kemur, engin sía!
Ester Sveinbjarnardóttir, 15.6.2007 kl. 07:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.